|
AÐALFUNDUR SKA 9. MAÍ 2012 |
|
Þriðjudagur, 08. maí 2012 08:50 |
|
Minnum á aðalfund SKA sem fram fer í íþróttahöllinni klukkan 20:00 miðvikudaginn 9. maí. Hefðubundin aðalfundarstörf.
Með von um góða mætingu
Stjórn SKA |
|
|
Lokahóf hjá 12 ára og yngri |
|
Föstudagur, 27. apríl 2012 10:07 |
|
Lokahóf iðkenda 12 ára og yngri í alpagreinum og skíðagöngu verður haldið í gryfjunni, sal VMA þriðjudaginn 1. maí kl. 15:30 (gengið inn að austan). Allir iðkendur fá verðlaun fyrir þátttökuna í vetur. Veitt verða verðlaun fyrir Akureyrarmótin, framfarir og ástundun. Hvetjum alla til að mæta og eiga saman góða samverustund í lok skíðavertíðar! Sjá auglýsingu hér.
Barna– og unglinganefnd SKA |
|
AÐALFUNDUR SKA 9. MAÍ 2012 |
|
Miðvikudagur, 25. apríl 2012 07:57 |
|
Fyrirhugaður aðalfundur SKA verður miðvikudagskvöldið 9. maí kl. 20:00 í íþróttahöllinni en ekki 8. maí eins og fram kom áður.
Minni þá á sem hafa áhuga á því að starfa í stjórn, nefndum eða taka að sér formennsku hafi endilega samband við formann uppstillinganefndar, Eyrúnu B. Þorfinnsdóttur (
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
) og láti vita af sér EÐA koma með ábendingar um aðila í ofangreind störf sem fyrst og helst fyrir 27. apríl n.k. :-)
Það er gaman og gefandi að vera í þessum störfum og tækifæri til þess að láta gott af sér leiða :-)
Með von um góð viðbrögð
Stjórn SKA |
|
Keppni lokið á Andrés 2012 |
|
Laugardagur, 21. apríl 2012 15:05 |
|
Keppni er lokið í Brettastæl og er því keppni lokið í öllum greinum á Andrésar Andarleikunum 2012. Úrslit úr brettakeppni dagsins eru komin inn á úrslitasíðuna. Verðlaunaafhending verður nú klukkan 15:00 í Íþróttahöllinni í öllum þeim greinum sem keppt var í í dag. |
|
Laugardagur, 21. apríl 2012 13:22 |
|
Keppni í skíðagöngu á Andrés er lokið og úrslitin komin á úrslitasíðuna. |
|
Keppni lokið í alpagreinum |
|
Laugardagur, 21. apríl 2012 12:30 |
|
Keppni er lokið í alpagreinum á 37. Andrésar Andarleikunum. Öll úrslit leikanna eru komin inn. Nú er í gangi keppni í boðgöngu í öllum aldursflokkum og einnig er í gangi snjóbrettakeppni (slopestyle) í Suðurgili. Verðlaunaafhending verður í Íþróttahöllinni fyrir alla flokka sem kepptu í dag. |
|
Lokakeppnisdagur á Andrés 2012 runninn upp |
|
Laugardagur, 21. apríl 2012 08:19 |
|
Þá er lokakeppnisdagur á Andrés runninn upp en í dag hefst keppni í Norðurbakka klukkan 9:00 í svigi í flokki 13-14 ára. Klukkan 10:00 hefst svo keppni hjá 6-7 ára stúlkum í leikjabraut í Ævintýraleiðinni og hjá 7 ára drengjum í stórsvigi í Andrésarbrekkunni. Í Suðurbakka verður keppt í stórsvigi klukkan 10:00 í 11 ára flokki. |
|
Laugardagur, 21. apríl 2012 08:12 |
|
Halldór Gunnar kórstjóri Fjallabræðra verður á Akureyri á morgun við upptökur. Við byrjum kl. 13:00 í Hofi, svo verður stefnan tekin í Íþróttahöllina á Akureyri þar sem upptökur verða kl. 16:30 fyrir þátttakendur & aðstandendur Andrésar Andar leikanna.
Tilgangurinn er að taka upp fjöldasöng við nýtt lag sem ber það lágstemmda nafn Ísland.:-) Síðan verður það gefið öllum þeim sem vilja eiga það.
Stóra hugmyndin er sú að ná 30.000 röddum og til þess að það sé hægt hefur Halldór Gunnar Pálsson, Kórstjóri Fjallabræðra, lagt upp í ferðalag í flesta bæi og öll sveitarfélög.
|
|
Nánar...
|
|
Starfsmannalisti fyrir laugardag |
|
Föstudagur, 20. apríl 2012 21:07 |
|
Um leið og starfsmönnum eru þökkuð mjög vel unnin störf á Andrésar Andarleikunum í dag þá fylgir með uppfærður starfsmannalisti fyrir morgundaginn (mjög litlar breytingar). Vek athygli á því að mæting er klukkan 7:00 í Hlíðarfjall í fyrramálið (í stað 6:30 eins og stendur í starfsmannalista :-)
Kveðja Hildigunnur og Ögmundur |
|
Úrslit dagsins komin á netið |
|
Föstudagur, 20. apríl 2012 15:14 |
|
Nú er keppni lokið í dag og eru öll úrslit komin inn á síðuna. |
|
Verðlaunaafhendingu flýtt um hálftíma |
|
Föstudagur, 20. apríl 2012 12:54 |
|
Verðlaunaafhending verður í Íþróttahöllinni klukkan 16:30 í dag en ekki 17:00 eins og kemur fram í dagskránni. |
|
|
|