Fréttir

Stóðu sig vel á Evrópuhátíð Ólympíuæskunnar

Lesa meira

Ólympíuhátið Evrópuæskunnar lokið - okkar fólk stóð sig með sóma

Aron Máni með góða bætingu í stórsvigi
Lesa meira

Ólympíuhátið Evrópuæskunnar - 9 krakkar frá SKA taka þátt

Vetrarhátíðin fer að þessu sinni fram í Sarajevó og austur-Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu 9.-16. febrúar.
Lesa meira

Bikarmót alpagreina SKÍ - ENL mót á Akureyri verður haldið 2.-3. mars nk.

Bikarmót SKÍ - ENL mót á Akureyri sem áður var frestað verður haldið dagana 2.-3. mars nk. Skoðað verður þegar nær dregur að halda bæði mótin annan hvorn daginn. Keppt verður í 2 x stórsvigi. Fararstjórafundur er áætlaður kl. 20:00 á föstudag á skrifstofu SKÍ, Íþróttahölinni á Akureyri. Nánari dagskrá verður birt á vef Skíðafélags Akureyrar www.skidi.is Þátttökutilkynningar skulu berast í síðasta lagi miðvikudaginn 27. febrúar kl. 12:00 á netfangið almarun@akureyri.is Vinsamlega skilið þátttökutilkynningum á viðeigandi eyðublaði (entry form, sjá heimasíðu SKÍ). Áríðandi er að FIS númer fylgi skráningu. Upplýsingar um ferða-, gisti-, og þjónustuaðila á Akureyri og í nágrenni er að finna á www.visitakureyri.is Með skíðakveðju, Mótanefnd Skíðafélags Akureyrar
Lesa meira

Tilnefningar SKA til íþróttamanns Akureyrar fyrir veturinn 2018

Skíðafélag Akureyrar hefur tilnefnt fjóra glæsilega vetraríþróttamenn til að bera titilinn íþróttamaður Akureyrar. Þau eru Magnús Finnsson (alpagreinar karla), Katla Björg Dagbjörtsdóttir (alpagreinar kvenna), Isak Stian Peterson (skíðaganga) og Baldur Vilhelmsson (snjóbretti). Við óskum þeim til hamingju með tilnefninguna. Íþróttamaður Akureyrar verður valinn í Hofi miðvikudaginn 16. janúar k. 17.30, athöfnin er öllum opin.
Lesa meira

Byrjendanámskeiði á snjóbrettum frestað

Það er því miður ekki útlit fyrir að við getum haldið seinna námskeiðið byrjendanámskeiðið á snjóbrettum sem áætlað er um helgina. Við auglýsum nýja dagsetningu um leið og aðstæður breytast. Á móti kemur að það skapast tækifæri til að taka á móti fleirum þegar færi gefst. Áhugasamir sendið skráningar á brettadeildska@gmail.com - enn eru nokkur pláss laus.
Lesa meira

International Childrens Winter Games - Skíðagönguhópur SKA í góðum hópi

Á sunnudaginn lagði þessi hópur af stað til Lake Placid, USA til að taka þátt í International Childrens Winter Games undir nafni IBA. Hópinn skipa 4 skíðagönguiðkendur (Askur, Ás, Birta og Ævar), hokkýlið stúlkna og listhlaupastúlkur ásamt þjálfurum/fararstjórum. Við óskum þeim góðrar ferðar og góðrar skemmtunar Skíðafélag Akureyrar
Lesa meira

Þrjú hlutu ferðastyrk úr Afrekssjóði Akureyrar

Lesa meira

Jólakveðja 2018

Kæru félagar. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum samstarfið og samvinnuna á árinu sem er að líða. Hetjurnar sem gætu verið á myndinni eru foreldrarnir sem standa vaktina til að halda úti starfsemi félagsins hvernig sem viðrar, þjálfararnir sem yfirgefa ekki svæðið fyrr en síðustu verðlaunin hafa verið veitt og félagar sem starfa áratugum saman með félaginu þrátt fyrir að börnin þeirra séu löngu flognir úr hreiðrinu. Þökkum stuðninginn Stjórn SKA
Lesa meira

Mótaskrár 2022

Mótanefnd SKA hefur sett upp mótaskrá SKA fyrir árið 2021 til viðbótar við mótaskrá SKI. Gott að hafa til hliðsjónar þegar helstu viðburðir ársins 2021 eru merktir inn í nýju dagbókina. Munið að við höfum alltaf þörf fyrir auka aðstoðarmenn á mótunum okkar.
Lesa meira